sópran
Mezzósópransöngkonan Sophie Kidwell er sigurvegari söngkeppninnar Young Welsh Singer of the Year árið 2024 og hlaut verðlaun í 43. alþjóðlegu söngkeppninni Hans Gabor Belvedere árið 2025. Í kjölfarið var henni boðið starf sem einsöngvari við Þjóðóperuna í Bern, þar sem hún hefur störf haustið 2026.
Sophie lauk BA-prófi í tónlist, enskum bókmenntum og þýsku frá Durham-háskóla og síðar grunn- og meistaraprófi í óperusöng frá Hochschule für Musik, Theater und Medien Hannover.
Eftir rómaða frumraun sem Carmen á Schlossfestspiele Ettlingen árið 2022 söng hún sama hlutverk í La Tragédie de Carmen við Landestheater Linz. Á árunum 2023–2025 var hún meðlimur í OperAvenir, óperustúdíói Óperunnar í Basel, þar sem hún söng meðal annars Carmen, Maddalenu (Rigoletto), Frédéric (Mignon), Floru (La Traviata) og tók þátt í Niflungahringnum sem Flosshilde og Grimgerde.
Á leikárinu 2025/26 þreytti Sophie frumraun sína sem Olga í Jevgení Onegin hjá Theater Aachen og endurtók hlutverk Maddalenu hjá Opéra de Lausanne.
Sem einsöngvari hefur hún komið fram með Sinfóníuhljómsveit Bernar í Stabat Mater eftir Dvořák og sungið meðal annars Petite Messe Solennelle eftir Rossini og The Music Makers eftir Elgar.
sophie kemur fram ásamt
Elísabetu Waage
Hörpu Ósk Björnsdóttur
Kristínu Einarsdóttur Mäntylä
Matthildi Önnu Gísladóttur
sophie á netinu
Vefsíða
sophie KEMUR FRAM Á
Vættir og óvættir