sópran
Sópransöngkonan Kristín Einarsdóttir Mäntylä (Kristin E. Mantyla) ólst upp í kórastarfi Langholtskirkju í Reykjavík. Að loknu námi hjá Hörpu Harðardóttur við Söngskólann í Reykjavík hélt hún áfram námi við Tónlistar- og leiklistarháskólann „Felix Mendelssohn Bartholdy“ í Leipzig hjá prófessorunum Regina Werner-Dietrich og Brigitte Wohlfarth. Hún lauk Meisterklasse-gráðu með hæstu einkunn árið 2024 og starfaði jafnframt sem aðstoðarkennari hjá próf. Brigitte Wohlfarth á árunum 2022–2024.
Kristín hefur komið fram við fjölmörg óperuhús í Þýskalandi, þar á meðal í Leipzig, Bonn, Würzburg, Dessau, Altenburg, Brandenburg og Nordhausen, auk uppfærslna með Szene 12 í Dresden og á Schlossfestspiele Ettlingen. Meðal nýlegra hlutverka hennar eru Marie í Wozzeck eftir Alban Berg, titilhlutverkið í Svadba og Ikuma í Die Reise zu Planet 9 við Theater Bonn, Elle í La voix humaine eftir Poulenc í Hörpu og Judith í Bláskeggskastala eftir Bartók í Leipzig.
Kristín hefur einnig komið fram sem einsöngvari í Konzerthaus Berlin, á Bachfest Leipzig, Rheinsberg Schlosstheater og hjá Íslensku óperunni. Hún er verðlaunahafi Junge Stimmen Leipzig og hefur hlotið styrki frá Richard Wagner-félaginu í Leipzig og Yehudi Menuhin Live Music Now.
Kristín kemur fram ásamt
Elísabetu Waage
Hörpu Ósk Björnsdóttur
Matthildi Önnu Gísladóttur
Hildigunni Einarsdóttur
Kristín KEMUR FRAM Á
Vættir og óvættir