Dægurlög
9. ágúst kl. 19:00, Norðurljós


Kaupa miða

Hvað eru dægurlög og hvernig verða þau til? 
Þetta eru meðal spurninga sem Elja mun reyna að svara á þessum tónleikum þar sem sveitin mun leiða hlustendur í gegnum sögu dægurlagatónlistar í gegnum útsetningar úr óvenjulegum áttum. Má þar nefna útsetningar Arnold Schoenberg á sönglögum frá Napólí og Luciano Berio á lögum Bítlanna, ásamt ýmsu öðru óvæntu.

Um Flytjendur:

Elja samanstendur af ungu íslensku klassísku tónlistarfólki. Öll eiga þau það sameiginlegt að hafa stundað nám saman á Íslandi áður en haldið var erlendis, og starfa þau nú flest sem einleikarar eða hljómsveitarspilarar á Íslandi og víða um heim. Frá stofnun kammersveitarinnar árið 2017 hefur hún skipað sér í sess meðal fremstu kammersveita landsins og hefur vakið athygli fyrir líflegan og ferskan flutning. Elja hefur á þessum árum komið reglulega fram og stærstu tónleikarnir eru yfirleitt haldnir bæði á sumrin og um áramót ásamt smærri kammertónleikum á haust- og vorönn. Tónleikahúsnæðin hafa verið fjölbreytt og þar má nefna Hörpu, Gamla Bíó, Hof, Gömlu kartöflugeymslurnar, Iðnó, Tjarnarbíó og Miklagarð í Varmahlíð. Elja hefur hlotið mikið lof fyrir flutning sinn og var tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna 2019 sem flytjandi ársins (hópar) í flokknum Sígild og samtímatónlist. Einnig var Elja útnefnd listhópur Reykjavíkur árið 2026.


Lokapartí (staðsetning tbc):

Seigla þakkar fyrir helgina með því að bjóða til lokahófs eftir síðustu tónleika hátíðarinnar. Allir gestir Seiglu eru hjartanlega velkomnir að koma og fagna með flytjendum, skipuleggjendum, stuðningsaðilum, bakhjörlum, hollvinum og aðstandendum Seiglu. Bar með ýmsum drykkjum og léttum veitingum verður á staðnum. Það er sannarlega tilefni til að skála.




Efnisskrá

    Efnisskrá verður kynnt af sveitinni á meðan tónleikum stendur.
    Fram Koma

    Elja · kammersveit

    Hjörtur Páll Eggertsson · stjórnandi