KIMI Ensemble
KIMI ensemble samanstendur af Jónasi Ásgeiri Ásgeirssyni harmóníkuleikara, Katerinu Anagnostidou slagverksleikara og Þórgunni Önnu Örnólfsdóttur söngkonu. Tríóið einblínir einkum á flutning nýrra verka sem samin eru fyrir sérstæða hljóðfærasamsetningu hópsins, í bland við eigin útsetningar á þjóðlagatónlist.
Hópurinn hefur undanfarin ár verið að hasla sér völl á sviði samtímatónlistar bæði hérlendis og erlendis og hefur þegar unnið með fjölda tónskálda, þ.á m. Finni Karlssyni, Þuríði Jónsdóttur, Huga Guðmundssyni, Þórönnu Björnsdóttur, Christos Farmakis og Ásbjörgu Jónsdóttur. Hópurinn hlaut tilnefningu til Íslensku tónlistarverðlaunanna árið 2021 fyrir tónleika ársins í flokknum sígild og samtímatónlist. Sama ár kom út fyrsta smáskífa hópsins hjá Dacapo Records - hljóðritun á verkinu Bittersweet eftir Nick Martin. KIMI ensemble tók þátt í Feneyjartvíæringnum 2024 í Norræna skálanum þar sem þau fluttu ásamt öðrum óperu Tze Yeung Ho og Lap See Lam. Á meðal næstu verkefna KIMA má nefna tónleikaferðalag um Grikkland og þátttaka í Novembre Nordico hátíðinni í Róm.
meðlimir KimaJónas ÁsgeirÁsgeirsson
Katerina Anagnostidou
Þórgunnur Anna Örnólfsdóttir
KIMI á netinuFacebook
Vefsíða
Kimi KEMUR FRAM Á
Thor í tónum