Þórgunnur Anna Örnólfsdóttir


sópran

Þórgunnur Anna Örnólfsdóttir er klassískt menntuð söngkona sem syngur allt frá barokki til nútímatónlistar, en hefur undanfarin ár verið að skapa sér sérstöðu við frumflutning nýrra verka, bæði sem einsöngvari og sem meðlimur tónlistarhópsins KIMI ensemble. Hún hefur frumflutt yfir 20 verk - má þar nefna fimm óperur, leikhústónlist, óratoríu og fjölda kammerverka eftir íslensk og erlend tónskáld. 

Þórgunnur hefur komið fram sem einsöngvari m.a. með Sinfóníuhljómsveit Íslands, BIT20 Ensemble (NO), Ensemble Storstrøm (DK), Århus Sinfonietta (DK), Scenatet (DK), Kammersveit Reykjavíkur og  Elju, og sungið á hátíðum og tónleikaröðum svo sem Bang on a Can (BNA) og Tête à Tête (BR), Nordic Song Festival (SE), NJORD biennale (DK), Sumartónleikum í Skálholti, TÍBRÁ, 15:15, o.fl. Þórgunnur hefur tekið þátt í ýmsum framsæknum óperusýningum í Skandinavíu, m.a. á vegum Neugeboren Opera og Venteværelset, sem og sviðsverkum sem sameina ólíkar listgreinar; má þar nefna verkið The Altersea Opera flutt á Feneyjatvíæringnum 2024 og leiksýninguna Livia’s Room eftir norska leikskáldið Lene Therese Teigen í samstarfi við tónskáldið Þuríði Jónsdóttur. Hún hefur m.a. túlkað óperuhlutverkin Dido og Ariodante og er ötull flytjandi kammertónlistar. 

Þórgunnur var tilnefnd sem „söngvari ársins“ á Grímunni árið 2025 fyrir hlutverk sitt í nýju íslensku óperunni Brím. Hún var meðal sigurvegara í keppninni Ungir einleikarar á vegum Sinfóníuhljómsveitar Íslands árið 2021 og sama ár hlaut tríóið hennar, KIMI ensemble, tilnefningu til Íslensku tónlistarverðlaunanna fyrir besta tónlistarflutninginn. Þórgunnur lauk burtfararprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík undir handleiðslu dr. Þórunnar Guðmundsdóttur og Sigrúnar Hjálmtýsdóttur og síðar bakkalár- og meistaragráðu frá Konunglega danska tónlistarháskólanum í Kaupmannahöfn undir leiðsögn Hönnu Hjort og Marianne Rørholm. Þórgunnur er einnig með BA-próf í íslensku og mannfræði frá Háskóla Íslands.



þórgunnur er meðlimur KIMI Ensemble



þórgunnur kemur fram á
Thor í tónum