Bergmál úr garðinum



10. ágúst kl. 20:00, Norðurljós

Kaupa miða

Thor í tónum - aldarafmæli skálds

Tálgljáandi…litvíxlandi…geislaflökt. Snöggfærðar sýnir sem leiftra og loga. Dropar í dýjamosa titra, glitra einsog smágerð djásn. Húmskyggður…hafdjúpslitur…öskra því öskra þú sær // öskraðu hærra æri sær…


Sagnaskáldið Thor Vilhjálmsson hefði fagnað aldarafmæli þann 12. ágúst 2025. KIMI ensemble efnir af því tilefni til tónleika þar sem flutt verða tónverk, bæði gömul og ný, samin við texta eftir skáldið. Efnisskráin samanstendur meðal annars af tveimur nýjum verkum sem samin voru fyrir tilefnið eftir tónskáldin Maríu Huld Markan Sigfúsdóttur og Hauk Tómasson, sem og verkum eftir Áskel Másson og Atla Heimi Sveinsson - en Thor átti gjöfult samstarf við þá báða.
 Verk Maríu Huldar er samið við náttúruljóð Thors, „Thalatta: Fimm ljóð um hafið“, þar sem steinharpa Páls Guðmundssonar á Húsafelli verður í lykilhlutverki, á meðan verk Hauks „Bergmál úr garðinum“ er samið við vel valin prósabrot sem snúa að þekktum þemum úr skáldskap Thors; mannlífi - handanheimi - náttúru. 

Thor Vilhjálmsson var afkastamikill rithöfundur og þýðandi, brautryðjandi módernisma í íslenskum bókmenntum og ötull talsmaður menningar og lista í samfélaginu. Hann hlaut margvíslegar viðurkenningar á ferli sínum, svo sem Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs og Íslensku bókmenntaverðlaunin. Skáldið var afar tónelskt og sótti gjarnan innblástur í tónlist, sér í lagi lifandi flutning klassískrar tónlistar. 



Tónleikaspjall kl. 19:00

Fáðu þér drykk í Hörpuhorni og spjallaðu við flytjendur Seiglu um tónleikana sem eru framundan, efnisskrána og tónlistina sem þeir munu spila seinna um kvöldið.



Efnisskrá

Áskell Másson (1953)
        „Skugginn hefur flókna vél“ (1991) - vídjóverk

Áskell Másson (1953)
       
Spor í spori (1994/2025, endursamið fyrir KIMA)

KIMI ensemble/Thor (spuni)
       „Tónn sem helzt í tvær og hálfa mínútu, úr 
        skálklukku (í fís-moll)“ - ljóð eftir Thor 
        Vilhálmsson við spuna KIMA ensemble

Haukur Tómasson (1960) : Bergmál úr garðinum (frumflutningur)
        I. mannlíf
        II. handanheimur
        III. náttúra

Ingibjörg Þorbergs (1927-2019)
        Grámosinn glóir: „Kvöld smalans“ (1998)

Upplestur / Atli Heimir Sveinsson (1938-2019)
       „Þrennir smámunir“ - Afmæliskveðja til Thors 
        1985

       Á milli kaflanna þriggja verða lesin valin textabrot 
        eftir Thor.

María Huld Markan (1980)
        Thalatta: Fimm ljóð um hafið (frumflutningur)

Atli Heimir Sveinsson (1938-2019)
        Haust (1981, ljóð eftir Thor Vilhjálmsson)

    Fram KOMA

    KIMI ensemble

    Jónas Ásgeir Ásgeirsson
    harmóníkuleikari

    Katerina Anagnostidou
    slagverksleikari

    Þórgunnur Anna Örnólfsdóttir
    söngkona