Jónas Ásgeir Ásgeirsson
Harmóníkuleikari
Jónas Á. Ásgeirsson er klassískur harmóníkuleikari búsettur í Kaupmannahöfn þar sem hann lauk meistara-og einleikaranámi (solist) við Konunglega tónlistarháskólann undir leiðsögn Geir Draugsvoll og Andreas Borregaard. Jónas hefur að markmiði að efla ímynd harmóníkunnar sem klassískt hljóðfæri á Íslandi og hefur að því tilefni pantað fjölmörg verk af íslenskum sem erlendum tónskáldum. Jónas gaf út plötu 2022 með íslenskri tónlist fyrir klassíska harmóníku ásamt Ragnheiði Jónsdóttur upptökustjóra og Dacapo Records. Á plötunni er m.a. konsert Finns Karlssonar sem hlaut viðurkenninguna tónverk ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum 2021. Einnig eru enduruppgötvuð verk frá merkum tónskáldum eins og Þorkatli Sigurbjörnssyni og Atla Heimi Sveinssyni sem ekki höfðu verið hljóðrituð áður. Fikta var valin plata ársins í flokknum sígild-og samtímatónlist á Íslensku tónlistarverðlaununum 2023 og var Jónas valinn flytjandi ársins í sama flokki. Jónas flutti fyrstur Íslendinga harmóníkukonsert með Sinfóníuhljómsveit Íslands 2016 og kom síðar meir fram sem einleikari með hljómsveitinni á Myrkum músíkdögum 2024 með tvenna konserta. Hann hefur einnig komið fram sem einleikari ásamt kammersveitinni Elju og BIT20 ensemble og framundan er flutningur á nýjum konsertum Veronique Vöku með Athelas Sinfonietta og Báru Gísladóttur ásamt Århus Sinfonietta.
Jónas er stofnmeðlimur þriggja framsækinna tónlistarhópa sem stuðla að flutningi nútímatónlistar á Íslandi, Danmörku og víðar: EKKI MINNA ásamt sellistanum Andrew Power; harmóníkutríóinu ítríó ásamt Jóni Þorsteini Reynissyni og Helgu Kristbjörgu Guðmundsdóttur og KIMI ensemble ásamt Katerinu Anagnostidou slagverksleikara og Þórgunni Önnu Örnólfsdóttur söngkonu.
jónas er meðlimur KIMI Ensemble
Jónas KEMUR FRAM Á
Thor í tónum