Katerina Anagnostidou

slagverksleikari

Katerina Anagnostidou er grískur slagverksleikari og flytjandi búsett í Kaupmannahöfn. Eftir að hafa lokið klassísku slagverksnámi í Aþenu hélt hún í framhaldsnám við Konunglega tónlistarháskólann í Danmörku og  útskrifaðist þaðan með meistaragráðu árið 2017.

Katerina kemur oft fram sem einleikari og hefur tekið þátt í mörgum alþjóðlegum keppnum, þar á meðal ARD International Music Competition í München. Hún hlaut verðlaun í PAS-keppninni í Patras árið 2011 í flokknum ‘Advanced keyboards’. Árið 2012 vann hún YAMAHA Foundation in Europe tónlistarkeppnina í Grikklandi. Árið 2016 hlaut hún sérstök verðlaun frá Sinfóníuhljómsveit Danmerkur sem efnilegasti tónlistarmaðurinn í flutningi hljómsveitartónlistar.

Árið 2018 flutti hún marimbukonsert eftir Peter Klatzow með Sinfóníuhljómsveit Álaborgar og var það fyrsti flutningur verksins í Danmörku. Hún veitti einnig verkum á borð við marimbukonsert Marcin Blazewicz og Komboï eftir Xenakis sína fyrstu flutninga þarlendis.

Katerina starfar með ýmsum tónlistarhópum með áherslu á nútíma-og samtímatónlist og hefur komið fram víða um Evrópu og í Bandaríkjunum. Hún hefur pantað fjölmörg ný verk fyrir slagverk, bæði sem einleikari og sem meðlimur í slagverkstvíeykinu SISTRO. Nýjasta smáskífa þeirra var gefin út af Don’t Look Back Records í ár.

Hún er einnig stofnmeðlimur KIMA, samtímatónlistarhóps í Kaupmannahöfn. Hópurinn gaf út sína fyrstu smáskífu, Bittersweet, árið 2022 og hefur farið í tónleikaferðir bæði um Ísland og í Bandaríkjunum. Í apríl 2024 kom Katerina fram á Feneyjatvíæringnum í Norræna skálanum sem hluti af verkinu Altersea Opera eftir listamanninn Lap See Lam.

Katerina vinnur nú að sinni fyrstu einleiksplötu með nýjum verkum fyrir marimbu eftir tónskáldin Nick Martin og Christos Farmakis.



katerina er meðlimur KIMI Ensemble

katerina kemur fram á 
Thor í tónum