Elísabet Waage


Hörpuleikari



Elísabet Waage lauk einleikara- og kennaraprófi á hörpu frá Konunglega Tónlistarháskólanum í den Haag, Hollandi undir handleiðslu Edward Witsenburg. Kammertónlist er Elísabetu hugleikin og leikur hún oft sem helmingur af dúói en einnig í stærri hópum s.s. Caput. Hún leikur reglulega með Sinfóníuhljómsveit Íslands og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og hefur komið fram sem einleikari, m.a. með Kammersveit Reykjavíkur, Íslensku hljómsveitinni, Sinfóníuhljómsveit Íslands, Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, Sinfóníuhljómsveit áhugamanna, Avanti í Finnlandi,  Autunno Ensemble í Hollandi, Aarhus Sinfonietta í Danmörku og Ensemble 6263 í Færeyjum.

Diskur Graduale Nobili og Elísabetar var tilnefndur til Íslensku tónlistarverðlaunanna. Einnig hefur hún leikið á diskum með Peter Verduyn Lunel flautuleikara, Gunnari Kvaran sellóleikara og Laufeyju Sigurðardóttur fiðluleikara. Ýmis tónskáld hafa samið tónverk fyrir hana, þ.á.m. Jón Nordal, Mist Þorkelsdóttir, John Speight, Páll Ragnar Pálsson, Kolbeinn Bjarnason og Hans-Henrik Nordström.

Hún hefur þrívegis þegið boð um að leika á Alheimsþingi hörpuleikara (World Harp Congress).

Elísabet hefur verið hörpukennari við Tónlistarskóla Kópavogs frá árinu 2002.




Elísabet kemur fram ásamt

Hörpu Ósk Björnsdóttur
Sophie Kidwell
Kristínu Einarsdóttur Mäntylä
Matthildi Önnu Gísladóttur



Elísabet á netinu

Spotify
Vefsíða




Elísabet KEMUR FRAM Á

Vættir og óvættir