Harpa Ósk Björnsdóttir


Sópran


Harpa Ósk Björnsdóttir söngkona er fædd og uppalin í Kópavogi. Hún hóf að læra söng í Langholtskirkju hjá Þóru Björnsdóttur og við Söngskólann í Reykjavík hjá Ólöfu Kolbrúnu Harðardóttur. Hún lauk mastersnámi við óperudeild bæversku leiklistarakademíunnar August Everding, við Prinzregententheater og Tónlistarháskólann í München í júlí 2024. Áður nam hún við Felix Mendelssohn tónlistarháskólann í Leipzig. 

Í dag starfar Harpa sem einsöngvari við Theater Basel í Sviss, þar sem hún hefur verið síðastliðin tvö ár. Hún hefur sungið við ýmis óperuhús í Evrópu, þar á meðal Bühnen Bern í Sviss, Oper Leipzig, Oper Halle og Prinzregententheater í München í Þýskalandi.

Harpa kemur reglulega fram sem einsöngvari í hljómsveitarverkefnum. Þennan veturinn söng hún sópranhlutverkið í Carmina Burana í fjórum mismunandi uppsetningum, bæði með Sinfonieorchester Basel og Sinfonieorchester Aachen í Eurogress Aachen og Kölner Philharmonie. Önnur tónleikaverkefni á þessu ári voru Jóhannesarpassía Bach með Sinfóníu Nord, c-moll messa Mozart með Cantus Basel og Exsultate Jubilate eftir Mozart með Norrlandsoperan sinfóníuhljómsveitinni í Umeå.

Næsta vetur mun Harpa m.a. syngja hlutverk Sophie í Rosenkavalier eftir Strauss í nýrri uppsetningu í Þýskalandi og hún mun koma fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands í 9undu sinfóníu Beethovens og á vínartónleikum.




Harpa kemur fram ásamt

Elísabetu Waage
Sophie Kidwell
Kristínu Einarsdóttur Mäntylä
Matthildi Önnu Gísladóttur



harpa á netinu

Vefsíða



Elísabet KEMUR FRAM Á

Vættir og óvættir