Matthildur Anna Gísladóttir


Píanóleikari



Matthildur Anna Gísladóttir lauk bakkalárnámi í píanóleik frá Listaháskóla Íslands árið 2007 undir leiðsögn Peter Máté. Þaðan lá leiðin til Andrew West í Royal Academy of Music í London þar sem hún lauk meistaranámi í meðleik árið 2009. Árið 2014 lauk Matthildur meistaranámi í óperuþjálfun frá Royal Conservatoire of Scotland (RCS) í Glasgow með þá Tim Dean og Oliver Rundell sem aðalkennara. Þar var hún á fullum skólastyrk og hlaut James H. Geddes verðlaunin í óperuþjálfun. Veturinn 2014-15 starfaði Matthildur sem óperuþjálfi hjá RCS. 

Matthildur hefur komið fram á fjölda tónleika hérlendis sem erlendis og komið að óperuuppsetningum, m.a. hjá Kammeróperunni, Óperudögum, Íslensku óperunni, British Youth Opera, RCS, Clonter Opera, Scottish Opera, Lyric Opera Studio í Weimar og Royal Academy Opera. Matthildur er aðjúnkt við tónlistardeild Listaháskóla Íslands.



Matthildur kemur fram ásamt

Hörpu Ósk Björnsdóttur
Elísabetu Waage
Hörpu Ósk Björnsdóttur
Sophie Kidwell
Veru Hjördísi Matsdóttur
Hildigunni Einarsdóttur




Matthildur KEMUR FRAM Á

Vættir og óvættir    
*Mæðramáttur