Vættir og óvættir

7. ágúst kl. 18:00, Norðurljós

Kaupa miða

Þrjár raddir fléttast saman á opnunartónleikum Seiglu og kanna goðsagnir náttúrunnar. Söngkonurnar Harpa Ósk Björnsdóttir, Kristín Einarsdóttir Mäntylä og Hildigunnur Einarsdóttir, ásamt Elísabet Waage á hörpu og Matthildi Önnu Gísladóttur á píanó, leiða saman óperu, sönglög og þjóðlagaarf frá ýmsum löndum Evrópu. Tónlistin ferðast á milli áa, skóga og yfirnáttúrulegra vera og rekur sögur sem hafa streymt um evrópska menningu um aldir.

Efnisskráin hefst í ríki vatnsins, þar sem goðsagnir og náttúra mætast. Rínarmeyjar Richards Wagners úr Das Rheingold gæta geislandi fjársjóðs undir yfirborði árinnar. Í Rusölku eftir Antonín Dvořák kalla vatnadísir úr djúpinu, en hinn frægi Söngur til tunglsins tjáir söknuð og undrun næturhiminsins.
Lorelei eftir Clöru Schumann, innblásið af hinni goðsagnakenndu sírenu Rínar, og The Seal Man eftir Rebeccu Clarke, byggt á keltneskum þjóðsögum um selkíur, halda áfram þessari könnun á töfrandi heimum vatnsins.

Frá vatninu liggur ferðin inn í skóginn, stað umbreytinga og dulinnar lífsorku. Í Hans og Grétu villast börnin inn í skóginn þar sem þau mæta norninni. Í óperunni The Cunning Little Vixen eftir Leoš Janáček syngja tveir refir leikandi dúett sem fangar lífskraft og frelsi skógarins. Waldseligkeit eftir Richard Strauss býður svo upp á ljóðræna sýn á kyrrláta töfra náttúrunnar.





hátíðAropnun

Opnunarhátíð Seiglu fer fram í Hörpuhorni - komdu og fáðu þér drykk áður en fyrstu tónleikar hátíðarinnar hefjast ásamt flytjendum, skipuleggjendum og aðstandendum. Þetta er einstakt tækifæri til að hittast og fagna upphafi helgar stútfullri af fjölbreyttum viðburðum. Hátíðardagskrá og tónlistarfólk Seiglu verður kynnt og svo leiðum við inn í helgina með tónlistarflutningi frá nokkrum af flytjendum hátíðarinnar.


Um flytjendur

Leiðir Kristínar Einarsdóttur Mäntylä sóprans, Hörpu Óskar Björnsdóttur sóprans og Hildigunnar Einarsdóttur mezzósóprans hafa legið saman margsinnis í gegnum árin. Harpa og Kristín ólust upp við að syngja saman í kórum Langholtskirkju í Reykjavík og héldu síðar áfram námi við Söngskólann í Reykjavík og Tónlistarháskólann „Felix Mendelssohn Bartholdy“ í Leipzig.

Þessir tónleikar marka í fyrsta sinn sem þær koma allar þrjár fram saman á sviði. Með þeim koma fram Matthildur Anna Gísladóttir píanóleikari og Elísabet Waage hörpuleikari, sem leiða áheyrendur með þeim inn í heim vatns, skógar og dulrænna vera.


Spjall og drykkir með flytjendum

Að opnunartónleikum loknum bjóðum við gestum að staldra við og hitta flytjendur Seiglu yfir drykk og spjalli. Þar gefst tækifæri til að halda tónlistinni gangandi í samtali: að ræða verkin, hugmyndirnar á bak við þau og upplifun kvöldsins í afslöppuðu og notalegu andrúmslofti. Á barnum í Hörpuhorni verður hægt að kaupa drykki og léttar veitingar.



efnisskrá

· WATER ·

Richard Wagner (1813–1883)
       Rheintöchter Trio from the opera Das          
        Rheingold: “Lugt, Schwestern!..”

Clara Schumann (1819–1896)
       Lorelei

Edward Elgar (1857–1934)
       From Sea Pictures:
       Sea Slumber Song
       Where Corals Lie

Rebecca Clarke (1886–1979)
        The Seal Man

Claude Debussy (1862–1918)
        Beau soir
        (with harp)

Traditional Welsh Folk Song
        Ar Lan y Môr (“On the Sea Shore”)
       (with harp)

Antonín Dvořák (1841–1904)
       From the opera Rusalka:
       Trio of the Water Nymphs “Hou hou hou,            
        stojí měsíc nad vodou!”
       Měsíčku na nebi hlubokém (“Song to the
       Moon”)

Interlude
        (Harp Solo)

Alphonse Hasselmans (1845-1912)
        La Source


· FORESTS ·

Felix Mendelssohn (1809–1847)
        Ye spotted snakes

Benjamin Britten (1913–1976)
       Come Now a Roundel from A Midsummer
        Night’s Dream
       A Charm from A Charm of Lullabies

Engelbert Humperdinck (1854–1921)
        From Hänsel und Gretel
        Abendsegen (Evening Prayer)
        Wo bin ich?... Mir ist so wohl
        Knusper, knusper, knäuschen

Robert Schumann (1810–1856)
        Waldesgespräch

Franz Schubert (1797–1828)
        Der Erlkönig

Giuseppe Verdi (1813–1901)
        “Ninfe! Elfi! Silfi! Doridi!”
        Nannetta’s Forest
        Aria from Falstaff

Leoš Janáček (1854–1928)
        Fox Duet from The Cunning Little          
        Vixen

Richard Strauss (1864–1949)
        Trio of the Nymphs (Naiad, Dryad and
        Echo) from Ariadne auf Naxos
Fram koma


Harpa Ósk Björnsdóttir · sópran

Hildigunnur Einarsdóttir · mezzó-sópran

Kristín Einarsdóttir Mäntylä · sópran

Elísabet Waage · hörpuleikari

Matthildur Anna Gísladóttir · píanóleikari