Þjóðgarðablanda


9. ágúst kl. 13:00, Norðurljós

Kaupa miða

Hér mætast tvö íslensk, fjögur bandarísk og eitt skoskt tónskáld ásamt einum íslenskum myndlistarmanni og sameina jarðfræði þriggja landa. Þjóðgarðablandan á rætur sínar að rekja til málverka Arngunnar Ýrar úr myndverkaröð hennar um þjóðgarða, þar sem hún fléttar saman myndum af þekktum fjalllendum Íslands og Bandaríkjanna. 

Tónskáldið Veronique Vaka hafði samband við víólu- og fiðludúóið Miller-Porfiris með hugmynd að verki innblásnu af þessum málverkum. Út frá þeirri hugmynd varð til verkefni þar sem sex ný verk voru pöntuð í kringum þemað um að sameina og flétta saman ólík landsvæði og þjóðgarða. 
Verkin hljóma nú í fyrsta sinn á Íslandi, en heimsfrumflutningur þeirra fór fram síðasta sumar á Grand Teton Music Festival í Bandaríkjunum, í hjarta Grand Teton þjóðgarðsins.

Tónlistinni fylgir sjónræn upplifun þar sem verk Arngunnar Ýrar er varpað upp á skjá ásamt myndum frá þeim stöðum sem verkin sækja innblástur sinn til. Áhorfendur fá að sjá eldgos, hreyfingu jarðfleka, kísilþörunga sem umbreytast í stuðlaberg og önnur náttúrufyrirbæri sem endurspegla tengsl landslaga staðanna. Saman mynda tónlist og myndlist ferðalag um náttúruöfl, landmótun og sameiginlegt ímyndunarafl þriggja ólíkra landa.



Um Flytjendur:

Miller-Porfiris Duo (MP2) hefur glatt áheyrendur með strengjaleik síðan árið 2005. Tvíeykið Rita Porfiris, víóluleikari, og Anton Miller, fiðluleikari, hefur haldið námskeið og meistaranámskeið á hátíðum og við stofnanir víðs vegar um Bandaríkin, Ísland, Evrópu, Mið-Austurlönd og Asíu. Á síðustu misserum hefur tvíeykið farið í tónleikaferðir um Bandaríkin, Ísland, Taívan og Ísrael, með lofsverðum flutningum á meðal annars Spitalfields-hátíðinni í London, Chamber Music of Little Rock, Chamber Music Pittsburgh, Tel Aviv Museum og Kammermúsíkklúbbi Íslands. Tónleikaröðin þeirra „MP2 on the Silver Screen“ hefur vakið athygli fyrir að kynna fyrir áheyrendum heillandi samruna þögulla kvikmynda og lifandi tónlistar.



Efnisskrá

    Veronique Vaka
           
    Vatn

    Hildigunnur Rúnarsdóttir

            Snæfellsjökulsþjóðgarður

    Errollyn Wallen
             
    Tree

    Anne Guzzo
              Water Suite

    Elena Ruehr
              Evening On Jenny Lake

    Ken Steen
            Smámyndir:
            Tungl yfir Laugarvatni
            Sprungudalur
            Þúfa
            Óvægið sólarljós

    Stephen Gryc
           Gazing

    Fram koma

    Duo Miller-Porfiris

    Anton Miller · fiðluleikari

    Rita Porfiris · víóluleikari