7. ágúst kl. 18:00, Norðurljós
Kaupa miða
Efnisskráin hefst í ríki vatnsins, þar sem goðsagnir og náttúra mætast. Rínarmeyjar Richards Wagners úr Das Rheingold gæta geislandi fjársjóðs undir yfirborði árinnar. Í Rusölku eftir Antonín Dvořák kalla vatnadísir úr djúpinu, en hinn frægi Söngur til tunglsins tjáir söknuð og undrun næturhiminsins.
Frá vatninu liggur ferðin inn í skóginn, stað umbreytinga og dulinnar lífsorku. Í Hans og Grétu villast börnin inn í skóginn þar sem þau mæta norninni. Í óperunni The Cunning Little Vixen eftir Leoš Janáček syngja tveir refir leikandi dúett sem fangar lífskraft og frelsi skógarins. Waldseligkeit eftir Richard Strauss býður svo upp á ljóðræna sýn á kyrrláta töfra náttúrunnar.
hátíðAropnun
Opnunarhátíð Seiglu fer fram í Hörpuhorni - komdu og fáðu þér drykk áður en fyrstu tónleikar hátíðarinnar hefjast ásamt flytjendum, skipuleggjendum og aðstandendum. Þetta er einstakt tækifæri til að hittast og fagna upphafi helgar stútfullri af fjölbreyttum viðburðum. Hátíðardagskrá og tónlistarfólk Seiglu verður kynnt og svo leiðum við inn í helgina með tónlistarflutningi frá nokkrum af flytjendum hátíðarinnar.
Um flytjendur
Leiðir Kristínar Einarsdóttur Mäntylä sóprans, Hörpu Óskar Björnsdóttur sóprans og Sophie Kidwell mezzósóprans hafa legið saman margsinnis í gegnum árin. Harpa og Kristín ólust upp við að syngja saman í kórum Langholtskirkju í Reykjavík og héldu síðar áfram námi við Söngskólann í Reykjavík og Tónlistarháskólann „Felix Mendelssohn Bartholdy“ í Leipzig. Kristín og Sophie stigu fyrst saman á svið á Schlossfestspiele Ettlingen í uppfærslu á Carmen, þar sem Sophie söng titilhlutverkið og Kristín fór með hlutverk Mercédès.
Harpa og Sophie störfuðu síðar saman í eitt leikár við Theater Basel sem meðlimir OperAvenir, óperustúdíós leikhússins. Þar komu þær fram í fjölmörgum sýningum, meðal annars Das Rheingold, Götterdämmerung, The Cunning Little Vixen, Into the Woods og Carmen. Á þeim tíma kom Kristín einnig reglulega til Basel-svæðisins til að syngja í uppfærslum á Parsifal.
Þessir tónleikar marka í fyrsta sinn sem þær koma allar þrjár fram saman á sviði. Með þeim koma fram Matthildur Anna Gísladóttir píanóleikari og Elísabet Waage hörpuleikari, sem leiða áheyrendur með þeim inn í heim vatns, skógar og dulrænna vera.
Spjall og drykkir með flytjendum
Að opnunartónleikum loknum bjóðum við gestum að staldra við og hitta flytjendur Seiglu yfir drykk og spjalli. Þar gefst tækifæri til að halda tónlistinni gangandi í samtali: að ræða verkin, hugmyndirnar á bak við þau og upplifun kvöldsins í afslöppuðu og notalegu andrúmslofti. Á barnum í Hörpuhorni verður hægt að kaupa drykki og léttar veitingar.
· WATER ·
Richard Wagner (1813–1883)
Rheintöchter Trio from the opera Das
Rheingold: “Lugt, Schwestern!..”
Clara Schumann (1819–1896)
Lorelei
Edward Elgar (1857–1934)
From Sea Pictures:
Sea Slumber Song
Where Corals Lie
Rebecca Clarke (1886–1979)
The Seal Man
Claude Debussy (1862–1918)
Beau soir
(with harp)
Traditional Welsh Folk Song
Ar Lan y Môr (“On the Sea Shore”)
(with harp)
Antonín Dvořák (1841–1904)
From the opera Rusalka:
Trio of the Water Nymphs “Hou hou hou,
stojí měsíc nad vodou!”
Měsíčku na nebi hlubokém (“Song to the
Moon”)
Interlude
(Harp Solo)
Alphonse Hasselmans (1845-1912)
La Source
· FORESTS ·
Felix Mendelssohn (1809–1847)
Ye spotted snakes
Benjamin Britten (1913–1976)
Come Now a Roundel from A Midsummer
Night’s Dream
A Charm from A Charm of Lullabies
Engelbert Humperdinck (1854–1921)
From Hänsel und Gretel
Abendsegen (Evening Prayer)
Wo bin ich?... Mir ist so wohl
Knusper, knusper, knäuschen
Robert Schumann (1810–1856)
Waldesgespräch
Franz Schubert (1797–1828)
Der Erlkönig
Giuseppe Verdi (1813–1901)
“Ninfe! Elfi! Silfi! Doridi!”
Nannetta’s Forest
Aria from Falstaff
Leoš Janáček (1854–1928)
Fox Duet from The Cunning Little
Vixen
Richard Strauss (1864–1949)
Trio of the Nymphs (Naiad, Dryad and
Echo) from Ariadne auf Naxos
Harpa Ósk Björnsdóttir · sópran
Sophie Kidwell · mezzó-sópran
Kristín Einarsdóttir Mäntylä · mezzó-sópran
Elísabet Waage · hörpuleikari
Matthildur Anna Gísladóttir · píanóleikari