Stjórnandi
Poul Emborg (f. 1959) lauk tónlistarnámi í Danmörku sem bæði söngvari og hljómsveitarstjóri. Hann á að baki langan og farsælan feril sem meðlimur í Söngsveit danska ríkisútvarpsins (DR Vokalensemblet), en lét af því starfi árið 2017 til að helga sig kórstjórn.
Frá árinu 2011 hefur hann verið stjórnandi Det Unge VokalEnsemble (DUVE), sem hefur undir hans stjórn öðlast alþjóðlega viðurkenningu. Nýverið sneri hann aftur til danska ríkisútvarpsins, nú sem kórstjóri Kórs Sinfóníuhljómsveitar danska ríkisútvarpsins (DR Koncertkoret).
Poul Emborg gegnir virku hlutverki í dönsku kórlífi og er eftirsóttur gestastjórnandi hjá kórum á borð við Ars Nova, Theatre of Voices, kórum Konunglegu dönsku óperunnar og Jyske Opera, auk Söngsveitar danska ríkisútvarpsins (DR Vokalensemblet).
Poul stjórnar
Det Danske VokalEnsemble
poul á netinu
Spotify
poul KEMUR FRAM Á
Milli orða og anda