Det Unge VokalEnsemble


Kammerkór


Det Unge VokalEnsemble (DUVE) er metnaðarfullur og listrænt drifinn kammerkór undir stjórn Poul Emborg. Kórinn samanstendur af 24 ungum söngvurum á aldrinum 18–35 ára, en margir þeirra stunda nám við tónlistarháskóla í Danmörku. 

Frá stofnun kórsins árið 2009 hefur DUVE fest sig í sessi sem einn af fremstu kammerkórum ungs tónlistarfólks í Danmörku.   Kórinn leggur ríka áherslu á að rækta einstakar raddir söngvaranna og þann hreina og beinskeytta hljóm sem einkennir ungar raddir. Margir meðlimir hans stefna að starfsferli sem söngvarar, hljóðfæraleikarar eða tónlistarkennarar. DUVE gegnir mikilvægu hlutverki í listrænni þróun margra efnilegra söngvara og hljóðfæraleikara á dönsku tónlistarsenunni. 

Starfsemi DUVE spannar allt frá hefðbundnum kirkjutónleikum til tilraunakenndra verkefna á tónlistarhátíðum og óhefðbundnum tónleikastöðum. Verkaval þeirra er fjölbreytt og nær frá fjölrödduðum söng endurreisnartímans og verkum rómantíkurinnar til nýrrar klassískrar tónlistar. Mikilvægur hluti af starfsemi kórsins er að styðja við ung tónskáld með pöntunum og frumflutningum á nýjum verkum og samstarfi við upprennandi listafólk úr ólíkum listgreinum. 

Kórinn hefur ferðast og komið fram víða og deilt danskri kórahefð meðal annars í Japan, Grænlandi, Eistlandi, Litháen, Finnlandi, Svíþjóð og Noregi.




Stjórnandi duve er

Poul Emborg



duve á netinu

Youtube
Instagram
Vefsíða




duve KEMUR FRAM Á

Milli orða og anda