Nina Vanhoenacker

sellóleikari


Nina Vanhoenacker er belgískur sellóleikari sem leggur áherslu á klassíska samtíma- og tilraunatónlist. Hún er meðlimur í Extended Music Collective, sem var valið sem Britten Pears Young Artist fyrir starfsárið 2025–26, og hljómsveitinni Inland Ocean. Árið 2024 var hún valin í hóp De Twintigers hjá belgísku útvarpsstöðinni Klara, sem skipaður er efnilegu ungu tónlistarfólki í Belgíu.

Nina hefur unnið með tónskáldum á borð við Leilehua Lanzilotti, Mark Andre og David Fennessy, meðal annarra. Hún hefur sérstakan áhuga á þverfaglegu samstarfi og skapar verk þar sem tónlist mætir kvikmyndum, dansi og myndlist.

Fyrsta sólóplata hennar, An unbalanced piece of wood (Protomaterial Records, 2026), kemur út árið 2026. Á henni eru nýstárleg verk fyrir selló eftir samtímatónskáld, auk tónverka eftir Ninu sjálfa.



Nina KEMUR FRAM Á

Tími í rými



Ásamt

Ann-Kristin Sofroniou



Nína á netinu
Vefsíða