Ann-Kristin Sofroniou


Píanóleikari



Kristín Sofroniou er kýpversk-sænskur píanóleikari, tónskáld og rannsakandi. Hún sérhæfir sig í samtímatónlist og barokktónlist, og þá sérstaklega rýminu þar á milli, þar sem hún sameinar tilraunakenndar aðferðir, listrannsóknir, spuna, hversdagslíf og leiki sem verkfæri til könnunar og sköpunar.     

Samhliða tónleikahaldi hefur hún verið að þróa verkefni sem flétta saman tónlist, frásögn og hljóð- og myndefni. Meðal þeirra er verkefnið PIANOSCAPES, myndbandsröð þar sem augnablik úr hversdagslífinu eru parað saman við spuna.  

Um þessar mundir undirbýr hún útgáfu á fyrstu plötu sinni, Darkness Visible (Protomaterial Records, nóvember 2026). Á plötunni fléttast saman frumsamin rafverk og kaflar úr Partítu í e-moll, BWV 830, eftir Bach.



Kristín KEMUR FRAM Á

Tími í rými


Ásamt

Ninu Vanhoenacker