Mannsröddin


9. ágúst kl. 17:30, Norðurljós

Kaupa miða

Óperan Mannsröddin (La Voix Humaine) eftir franska tónskáldið Francis Poulenc er byggð á samnefndu leikriti eftir Jean Cocteau og skrifuð fyrir sópranrödd og hljómsveit eða píanó. 


Óperan er einþáttungur og lýsir síðasta símtali konunnar Elle til elskhuga síns, sem hefur slitið fimm ára sambandi þeirra og mun giftast annarri konu næsta dag. 
Öll sagan er sögð í gegnum þetta eina símtal, þar sem við heyrum einungis hlið Elle. Í tónlistinni eru því tilheyrandi hik og pásur, en sönglínan er mestmegnis skrifuð í resitatíf stíl og píanóið sem svör viðmælandans. Þegar líður á samtalið fá áhorfendur skýrari mynd á eðli sambands þeirra og hvernig hlutum er í raun og veru háttað. Símalínan er það eina sem tengir Elle við fyrrverandi elskhuga sinn og er hún dauðhrædd um að sambandið slitni.

Flutningurinn fer fram á frönsku og íslenskri þýðingu Kristjáns Þórðar Hrafnssonar verður varpað upp á tjald. 



Efnisskrá

Francis Poulenc (1899-1963)
Mannsröddin (La Voix Humaine)

Líbrettó byggt á leikriti Jean Cocteau (1928)


Lengd: 40 mínútur
Fram KOMA

Kristín E. Mäntylä
Sópran

Eva Þyri Hilmarsdóttir
Píanóleikari

Sigríður Ásta Olgeirsdóttir
Leikstjóri