Stjórnandi
Hjörtur Páll Eggertsson er ungur hljómsveitarstjóri og sellóleikari búsettur í Danmörku. Árið 2022 lauk hann meistaragráðu í sellóleik við Konunglega Tónlistarháskólann í Kaupmannahöfn. Hann hefur komið fram sem sellóleikari á ýmsum tónlistarhátíðum í Evrópu og leikið einleik meðal annars með Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Hjörtur hóf stjórnendanám sitt við Malko Hljómsveitarstjóraademíuna, þar sem hann útskrifaðist árið 2022. Hann hefur tekið þátt í masterklössum hjá Herbert Blomstedt, Johannes Schlaefli, Nicolás Pasquet og Fabio Luisi. Frá 2023-2025 stundaði hann nám í hljómsveitarstjórn hjá Ed Spanjaard við Conservatorium van Amsterdam. Haustið 2025 hóf hann framhaldsnám í hljómsveitarstjórn við Konunglega Tónlistarháskólann í Kaupmannahöfn undir handleiðslu Giordano Bellincampi. Auk þess var hann á árunum 2024-2025 þátttakandi í Dirigentløftet Danmark og Nordisk Dirigentforum, þróunarverkefni ætluð efnilegustu stjórnendum Norðurlandanna.
Undanfarin misseri hefur hann unnið með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Kammersveit Reykjavíkur og Elju Kammersveit. Hann hefur einnig unnið reglulega sem aðstoðarstjórnandi Evu Ollikainen, meðal annars á tónleikum hennar með Sinfóníuhljómsveit BBC á BBC Proms.
Hjörtur stjórnar
Elju
hjörtur KEMUR FRAM Á
Krókaleið um Julius Eastman
Dægurlög