9. ágúst kl. 15:00, Yoko Horn
Frítt inn!
Tónapúslið er lifandi og gagnvirk tónleikastund sem tengir saman kynslóðir þar sem áhorfendur verða hluti af tónlistinni. Við syngjum saman, klöppum takta, hreyfum okkur, hlustum af athygli og leyfum ímyndunaraflinu að njóta sín.
Á efnisskránni eru verk eftir meðal annars Vivaldi, Bach, Chopin, Grieg, Beethoven og Atla Heimi Sveinsson.
Á meðan tónleikunum stendur geta gestir teiknað það sem tónlistin vekur upp í huganum og í lokin verða myndirnar hluti af sameiginlegri upplifun. Tónapúsl er skemmtileg stund þar sem klassísk tónlist verður að leik, sköpun og samveru fyrir alla aldurshópa.
Fram koma
Ewa Murawska · flautuleikari
Wiesław Suruło · flautuleikari
Áshildur Haraldsdóttir · flautuleikari
Erna Vala Arnardóttir · píanóleikari