Spjall með flytjendum


8. ágúst kl. 20:00, Hörpuhorn

Frítt inn!

Að tónleikum loknum bjóðum við gestum að staldra við og hitta flytjendur Seiglu yfir drykk og spjalli. 

Þar gefst tækifæri til að halda tónlistinni gangandi í samtali: að ræða verkin, hugmyndirnar á bak við þau og upplifun kvöldsins í afslöppuðu og notalegu andrúmslofti. 

Hvort sem þú ert á leið á næstu tónleika kvöldsins eða vilt einfaldlega njóta augnabliksins, er þetta tilvalið tækifæri til að spjalla við listamennina, fá sér drykk og undirbúa sig fyrir næstu tónleika. Á barnum í Hörpuhorni verður hægt að kaupa drykki og léttar veitingar.



Þar verða

Elja · kammersveit

Hjörtur Páll Eggertsson · stjórnandi