Spjall með flytjendum


7. ágúst kl. 20:00, Hörpuhorn

Frítt inn!
Að opnunartónleikum loknum bjóðum við gestum að staldra við og hitta flytjendur Seiglu yfir drykk og spjalli.

Þar gefst tækifæri til að halda tónlistinni gangandi í samtali: að ræða verkin, hugmyndirnar á bak við þau og upplifun kvöldsins í afslöppuðu og notalegu andrúmslofti. Á barnum í Hörpuhorni verður hægt að kaupa drykki og léttar veitingar.




Þar verða

Harpa Ósk Björnsdóttir · sópran

Sophie Kidwell · mezzó-sópran

Kristín Einarsdóttir Mäntylä · mezzó-sópran

Elísabet Waage · hörpuleikari

Matthildur Anna Gísladóttir · píanóleikari