Seigla 2026
Um hátíðina í ár
Dagskrá Seiglu tekur mið af þemanu flétta í ár. Hugmyndin að þessu þema kviknaði upphaflega í samstarfi við Elju kammersveit. Samstarfið skapaði tilefni til að velta fyrir okkur fléttum í víðari merkingu: hvernig listafólk vinnur saman, hvernig ólíkar raddir styrkja hver aðra og hversu mikilvæg samvinna er tónlistinni. Í litlu samfélagi eins og Íslandi verða slík tengsl sérstaklega sýnileg, þar sem auðvelt er að finna tengingar og skapa nýjar. Líkt og undanfarin ár leggjum við áherslu á að hátíðin sé ekki aðeins röð tónleika heldur einnig staður þar sem flytjendur og áheyrendur geta hist, rætt saman og deilt upplifun sinni.
Við bjóðum flytjendum og áheyrendum að nálgast þemað frá ólíkum sjónarhornum og velta fyrir sér hvernig þræðir tónlistar, texta, rýmis og mannlegra samskipta geta orðið að skemmtilegri heild. Fléttan getur birst á margvíslegan hátt. Hún getur til dæmis falist í sambandi mismunandi tónverka í efnisskrá eða komið fram í tónlistinni sjálfri, þar sem ólík stef, sögur, minningar og hugmyndir tvinnast saman. Hún birtist einnig í þeim samtölum og kynnum sem verða til í kringum tónleikana. Á hverjum tónleikum verða ný tengsl til; milli flytjenda, tónskálda, tónverka og ekki síst þeirra sem hlusta. Þemað er því ekki hugsað sem rammi sem takmarkar, heldur sem boð um að leita tenginga á nýjan hátt. Við hvetjum þátttakendur til að kanna fléttuþemað á sinn eigin hátt, en markmiðið er að skapa rými þar sem ólíkir þræðir geta mæst og orðið að einhverju nýju.
Í ár bætist við ný dagskrá undir heitinu Litla Seigla: röð viðburða sem fer fram samhliða almennri dagskrá hátíðarinnar. Hún er hugsuð með börn og fjölskyldur sérstaklega í huga, en öll eru hjartanlega velkomin. Þar leggjum við áherslu á leik og þátttöku, og frítt er inn á alla viðburði. Með Litlu Seiglu viljum við skapa fyrstu kynni yngstu gestanna af lifandi tónlist þar sem þátttaka, hreyfing og sköpun skipa jafn stóran sess og hlustunin sjálf.
Frá upphafi hefur markmið Seiglu verið að skapa umhverfi þar sem klassísk tónlist fær að lifa í opnu og aðgengilegu samhengi. Við viljum bjóða upp á tækifæri til samtals, samfélags og nýrra kynna. Þess vegna leggjum við áherslu á nálægð milli flytjenda og áheyrenda, fjölbreytta dagskrá og rými þar sem óvæntar tengingar geta orðið til.
Erna Vala Arnardóttir
Listrænn stjórnandi og stofnandi Seiglu
Listrænn stjórnandi og stofnandi Seiglu
Flytjendur og teymi
2026
Dagskrá Seiglu 2026
Um Seiglu
2026
Flytjendur Seiglu
Ann-Kristin Sofroniou · píanóleikari
Áshildur Haraldsdóttir · flautuleikari
Det Unge VokalEnsemble · kammerkór
Elísabet Waage · hörpuleikari
Elja · kammersveit
Erna Vala Arnardóttir · píanóleikari
Ewa Murawska · flautuleikari
Harpa Ósk Björnsdóttir · sópran
Hildigunnur Einarsdóttir · mezzó-sópran
Hjörtur Páll Eggertsson · stjórnandi
Áshildur Haraldsdóttir · flautuleikari
Det Unge VokalEnsemble · kammerkór
Elísabet Waage · hörpuleikari
Elja · kammersveit
Erna Vala Arnardóttir · píanóleikari
Ewa Murawska · flautuleikari
Harpa Ósk Björnsdóttir · sópran
Hildigunnur Einarsdóttir · mezzó-sópran
Hjörtur Páll Eggertsson · stjórnandi
Kristín Einarsdóttir Mäntylä · mezzó-sópran
Lee Marable · arkitekt
Matthildur Anna Gísladóttir · píanóleikari
Merve Ünlü · arkitekt
Duo Miller-Porfiris · dúó
Nina Vanhoenacker · sellóleikari
Poul Emborg · stjórnandi
Stúdíó Suð · hönnunarstofa
Vera Hjördís Matsdóttir · sópran
Wiesław Suruło · flautuleikari
Nánar um alla flytjendur hér
Lee Marable · arkitekt
Matthildur Anna Gísladóttir · píanóleikari
Merve Ünlü · arkitekt
Duo Miller-Porfiris · dúó
Nina Vanhoenacker · sellóleikari
Poul Emborg · stjórnandi
Stúdíó Suð · hönnunarstofa
Vera Hjördís Matsdóttir · sópran
Wiesław Suruło · flautuleikari
Nánar um alla flytjendur hér
teymi Seiglu
Erna Vala Arnardóttir · listrænn stjórnandi
Pétur Ernir Svavarsson · verkefnastjóri
Lee Marable · grafískur hönnuður
Erla Rut Árnadóttir · fjármálastjóri
Þorgrímur Þorsteinsson · tónmeistari
Nánar um teymi hér
Erna Vala Arnardóttir · listrænn stjórnandi
Pétur Ernir Svavarsson · verkefnastjóri
Lee Marable · grafískur hönnuður
Erla Rut Árnadóttir · fjármálastjóri
Þorgrímur Þorsteinsson · tónmeistari
Nánar um teymi hér
Dagskrá Seiglu 2026
Media Assets
Um Seiglu
Saga hátíðarinnar
Seigla er tónlistarhátíð sem var stofnuð árið 2021 og hefur farið fram árlega aðra helgina í ágúst í Hörpu. Hátíðin hefur það að markmiði að skapa náið samfélag meðal flytjenda og áhorfenda, þar sem tónlist er sett í forgrunn og áhersla lögð á að brjóta niður hefðbundin mörk milli þeirra sem flytja listina og þeirra sem njóta hennar. Tónleikar Seiglu eru skipulagðir með það í huga að upplifun áhorfenda verði persónuleg og að tónlistin skapi tengsl milli fólks. Staðsetning innan Hörpu og nálgun tónleikanna eru fjölbreytt og óhefðbundin, með það að markmiði að ná til mismunandi hópa og auka aðgengi að sígildri- og samtímatónlist.
Frá upphafi hefur áherslan verið á að ná til bæði ungs og fjölbreytts hóps tónleikagesta ásamt áhugafólki um tónlist sem almennt sækir ekki sígilda tónleika. Einnig er áhersla á að bjóða ungu og upprennandi tónlistarfólki sem starfar á Íslandi mikilvæg og verðmæt tækifæri til að koma fram í Hörpu. Seigla leitast við að bjóða upp á viðburði sem stuðla að þátttöku og lifandi samskiptum milli listafólks og gesta. Næstu þrjú ár er hátíðin einnig í samstarfi við doktorsrannsókn sem er haldið úti af Ernu Völu Arnardóttur, stofnanda og listrænum stjórnanda Seiglu, í samstarfi við Royal Academy of Music í London, sem skoðar hvernig samþætting persónulegrar frásagnar í tónleikadagskrárgerð (e. concert programming), sérstaklega á samfélagsmiðaðri tónlistarhátíð eins og Seiglu, stuðlar að nánari tengslum milli flytjenda og áhorfenda, sameiginlegum upplifunum og uppbyggingu samfélagskenndar, bæði frá sjónarhóli flytjenda og tónleikagesta.
Hafðu samband
Almennt:
Erna Vala Arnardóttir
Listrænn stjórnandi Seiglu
ernavala@gmail.com
+354 615 0302
Vættir og óvættir:
Harpa Ósk Björnsdóttir
Sópran
harpaosk123@gmail.com
+354 663 9157
Milli orða og anda
Thure Bendix Bang
Kórmeðlimur
thure.bang@outlook.com
Erna Vala Arnardóttir
Listrænn stjórnandi Seiglu
ernavala@gmail.com
+354 615 0302
Vættir og óvættir:
Harpa Ósk Björnsdóttir
Sópran
harpaosk123@gmail.com
+354 663 9157
Milli orða og anda
Thure Bendix Bang
Kórmeðlimur
thure.bang@outlook.com
krókaleið um julius eastman og dægurlög
Hjörtur Páll Eggertsson
Stjórnandi
hjorturpe@gmail.com
Þjóðgarðablanda:
Rita Porfiris
Víóluleikari
millerporfirisduo@gmail.com
Hjörtur Páll Eggertsson
Stjórnandi
hjorturpe@gmail.com
Þjóðgarðablanda:
Rita Porfiris
Víóluleikari
millerporfirisduo@gmail.com
mæðramáttur:
Vera Hjördís Matsdóttir
Sópran
veramatsdottir95@gmail.com
+354 661 6640
tími í rými:
Nina Vanhoenacker
Sellóleikari
nina.vanhoenacker@gmail.com
Suð:
Markús Bjarnason
Hönnuður
markusbjarnason@gmail.com
Snú snú:
Merve Ünlü
Arkitekt
merveunlu90@gmail.com
Tónapúsl
Áshildur Haraldsdóttir
Flautuleikari
ashildur.haraldsdottir@gmail.com
Nina Vanhoenacker
Sellóleikari
nina.vanhoenacker@gmail.com
Suð:
Markús Bjarnason
Hönnuður
markusbjarnason@gmail.com
Snú snú:
Merve Ünlü
Arkitekt
merveunlu90@gmail.com
Tónapúsl
Áshildur Haraldsdóttir
Flautuleikari
ashildur.haraldsdottir@gmail.com