Opið kall

Opið fyrir umsóknir til 28. febrúar 2026

Við tökum nú við umsóknum frá tónlistarfólki sem hefur áhuga á að vera með á Seiglu 2026. Umsóknartímabilið stendur yfir frá 4. febrúar til og með 28. febrúar 2026. Sækið um hér.

Seigla 7.-9. ágúst 2026


Seigla fer næst fram í Hörpu helgina 7.-9. ágúst 2026.
Tónleikar fara fram í Norðurljósum og opnum rýmum Hörpu.

Seigla er kammertónlistarhátíð sem á heima í Hörpu síðan hún var stofnuð 2021. Seigla leggur áherslu á viðburði þar sem hið hefðbundna tónleikaform er oft endurskoðað og leggur upp úr að bjóða upplifanir sem hvetja til samfélagsmyndunar.

Þema: Flétta


Þema Seiglu í ár er FLÉTTA.

Við bjóðum umsækjendum að túlka þema sem hvað það sem því finnst þema eigi við. Nálgun getur verið fjölbreytt og persónuleg, frá alls kyns sjónarhornum og getur átt við margar hliðar tónlistarupplifana.

Dagskrá ársins 2025 er enn aðgengileg hér á vefsíðu Seiglu. Hún gefur mynd af hvers konar viðburðir hafa farið fram á hátíðinni áður. Seigla er líka bæði á Facebook og Instagram þar sem hægt er að sjá hvaða verkefni hafa farið fram síðastliðin ár og hvernig hátíðin fer fram.

Umsóknarferlið

Óskað er eftir umsóknum frá tónlistarfólki eftir að halda tónleika eða tónlistarviðburð sem hluta af dagskrá Seiglu. Hugmyndir geta verið fullmótaðar og fullskipaðar eða ekki.


Til að fylla út umsóknina þarf eftirfarandi að fylgja:

•    Lýsing á verkefni
•    Efnisskrá
•    Upplýsingar um flytjanda/flytjendur
•    Hlekkir á fyrri upptökur

Það er einnig rými til að bæta við öðrum upplýsingum sem gætu til dæmis verið portfolio eða CV, hlekkir á umsagnir eða vefsíður og annað ef vill. Algengar spurningar og svör má finna neðst á umsóknarsíðunni. Við mælum með því að lesa í gegnum þær áður en umsóknin er fyllt út. Fleiri spurningum er velkomið að varpa til Seiglu á samfélagsmiðlum eða info@seiglafestival.com.

Skipulagsteymi Seiglu:


Erna Vala Arnardóttir, listrænn stjórnandi
Pétur Ernir Svavarsson, verkefnastjóri
Lee Marable, grafískur hönnuður
Erla Rut Árnadóttir, fjármálastjóri
Þorgrímur Þorsteinsson, tónmeistari