arkitekt
Merve Ünlü er arkitekt, borgarhönnuður og listamaður frá Tyrklandi með aðsetur í Helsinki. Hún hefur unnið að umfangsmiklum verkefnum á sviði almenningsrýma, byggingarlistar og rannsókna í Finnlandi, Tyrklandi og á Ítalíu.
Í starfi sínu beinir hún sjónum að félagslegum víddum borgarhönnunar, með sérstaka áherslu á kynjafræði, inngildingu og pólitík almenningsrýma. Um þessar mundir vinnur hún að verkefninu Cityscapes: A Vision for Universal Urban Enjoyment, sem sameinar myndlist og borgarfræði og nýtur styrks frá Menningarsjóði Finnlands.
merve KEMUR FRAM Á
Snú snú
Ásamt
Lee Marable