Seigla



7.-9 . ágúst 2026
Hörpu, Reykjavík
Seigla er kammertónlistarhátíð í Hörpu sem býður upp á fjölbreytta viðburði þar sem hið hefðbundna tónleikaform er brotið upp. 

Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá fyrir alla aldurshópa, meðal annars opna fjölskyldudagskrá undir heitinu Litla Seigla. Á Litlu Seiglu munum við fara í snú snú með tónlist, leika okkur að opna hljóðverkinu Suð í Hörpuhorni og syngja  saman í Norðurljósum í Tónapúsli. 
Í ár tekur dagskrá Seiglu mið af þemanu flétta. Við bjóðum flytjendum og áheyrendum að nálgast þemað frá ólíkum sjónarhornum og velta fyrir sér hvernig þræðir tónlistar, texta, rýmis og mannlegra samskipta geta fléttast saman í skemmtilega heild. 

Hátíðarpassi Seiglu veitir aðgang að öllum viðburðum hátíðarinnar. Hægt er að kaupa hátíðarpassa á forsöluverði til og með 7. júlí á 12.000 kr.











Seiglazine 

Seiglazine er árlegt tímarit gefið út í tengslum við Seiglu.  Fyrsta tölublað ritsins kom út í ágúst 2025. Seiglazine er ritstýrt af Ernu Völu Arnardóttur, hannað af Lee Marable.

Í ritinu má finna aðsendar greinar, smásögur, ljóð, myndir og teikningar,  hugleiðingar, slúður, verkalista og  ýmislegt fleira sem berst ritinu í gegnum opið kall. Auk þess er þar að finna hátíðardagskrá Seiglu, yfirlit yfir alla viðburði hátíðarinnar, og upplýsingar um viðburðina og efnisskrár ásamt upplýsingum um flytjendur hátíðarinnar.

Hægt er að kaupa eintök með því að hafa samband við zine@seiglafestival.com, eða á varningsborði á Seiglu í Hörpu yfir helgina 7.-9. ágúst. Seiglazine er einnig til sölu í bókabúðinni Skáldu á Vesturgötu, Bókakaffinu í Ármúla og hjá Forlaginu. Útgáfuhóf Seiglazine fer fram í bókabúðinni Skáldu miðvikudaginn 5. ágúst kl. 17.00. Sjá frekari upplýsingar:
Útgáfuhóf




Litla Seigla



Í ár höldum við upp á Litlu Seiglu í fyrsta sinn: barnatónlistarhátíð sem er skipulögð og auglýst meðfram almennri dagskrá Seiglu.

Litla Seigla verður röð viðburða sem verða skipulagðir og auglýstir sérstaklega fyrir yngri kynslóðina, þar sem fjölskyldur og börn verða hjartanlega velkomin.

Á Litlu Seiglu munum við fara í snú snú með tónlist, leika okkur að opna hljóðverkinu Suð í Hörpuhorni og syngja  saman í Norðurljósum í Tónapúsli.

Heildardagskrá Litlu Seiglu má nálgast:

Hér!