Jóna G. Kolbrúnardóttir




Jóna G. Kolbrúnardóttir hóf söngnám sitt við Söngskólann í Reykjavík og lauk burtfararprófi þaðan vorið 2014 undir leiðsögn Hörpu Harðardóttur. Sumarið 2018 lauk hún Bakkalárgráðu við Tónlistarháskólann í Vínarborg. Jóna hefur tekið þátt í ýmsum meistaranámskeiðum m.a. hjá Anne Sofie von Otter, Christine Schäfer og Stephan M. Lademann. Jóna hefur hlotið ýmsa styrki fyrir framúrskarandi árangur í söng meðal annars úr Tónlistarsjóði Rótarýs á Íslandi og einnig í Vínarborg. Hún útskrifaðist með meistaragráðu vorið 2021 frá Óperu Akademíunni við Konunglegu Óperuna í Kaupmannahöfn undir handleiðslu Helene Gjerris og Susanna Eken. Jóna hefur verið sýnileg í tónlistarlífinu hérlendis síðustu ár. Hún hefur komið fram sem einsöngvari á þónokkrum tónleikum með Sinfóníuhljómsveit Íslands en einnig með nokkrum helstu kórum landsins. Jóna hefur farið með tvö hlutverk hjá Íslensku óperunni; Gréta í óperunni “Hans og Gréta” og Anna í óperunni “Brothers” eftir Daníel Bjarnason. En einnig hefur hún komið fram á tvennum Kúnstpásu tónleikum á vegum Íslensku óperunnar. Hún fór með hlutverk Papagenu í Töfraflautunni eftir Mozart við Konunglegu Óperuna í Kaupmannahöfn haustið 2020. 

Jóna er einn af stofnendum Kammeróperunnar sem er nýstofnað óperufélag á Íslandi. Markmið Kammeróperunnar er að skapa vettvang fyrir smærri óperuverkefni. Jóna syngur einnig í Kammerkvartettnum á vegum félagsins sem hefur nú þegar komið mikið fram í tónlistarlífinu á Íslandi. Hún söng hlutverk Despinu í sýningu Kammeróperunnar, Così fan tutte - Óperukvöldverður, en sú sýning sló í gegn meðal áheyrenda. Í desember s.l. söng hún hlutverk Grétu í “Ævintýraóperan Hans og Gréta” í Tjarnarbíó í uppsetningu Kammeróperunnar. 




JÓNA KEMUR FRAM Á
Bergmál norðursins