Bryndís Guðjónsdóttir
sópran
Bryndís Guðjónsdóttir lauk meistaragráðu í óperusöng með láði árið 2021 frá Universität Mozarteum í Salzburg í Austurríki en áður hafði hún lokið bakkalárgráðu með láði frá Universität Mozarteum árið 2019. Hún hefur unnið til fjölda verðlauna meðal anars á Íslandi, Ítalíu, Spáni og Tékklandi og komið fram á fjölum óperuhúsa og með sinfóníuhljómsveitum svo sem í Semperoper Dresden, Essen, Kiel, Kassel, Martina Franca, München, Salzburg, Stuttgart, Prag, Róm, Vilnius, Sevilla og Madrid.
Bryndís er sigurvegari nokkura keppna í Evrópu, e XVIII Certamen Nuevas Voces Ciudad de Sevilla í Sevilla á Spáni, Riccardo Zandonai keppninngar á Ítalíu, Dušek competition in Prague og var einn af sigurvegurum í Ungum einleikurum á vegum Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
Bryndís er reglulegur gestur Prague Royal Philharmonic undir stjórn Heiko Mathias Förster.
Á síðasta misseri hefur Bryndís komið fram sem Greifynjans í uppfærslu Kammer óperunnar á Brúðkaupi Fígarós í Borgarleikhúsinu, á Vínartónleikum Sinfóníuhljómsveitar íslands, sem Ännchen í Der Freischütz í Kiel, sem Fyrsta Dama í Töfraflautu Mozarts í Aalto Theater Essen, sem sólisti með Sinfóníuhljómsveitar Íslands, Konunglegu Sinfóníuhljómsveitinni í Sevilla og í Isarphilharmonie, Gasteig í München með Prague Royal Philharmonic.
Bryndís var tilnefnd sem söngvari ársins í flokknum sígildri og samtímatónlist 2024.
Bryndís á netinuVefsíða
bryndís kemur fram á
Sundur og saman