Sópran
Vera er hálf íslensk og hálf sænsk sópransöngkona. Hún lauk meistaragráðu í klassískum söng frá Konunglega Tónlistarháskólanum í Den Haag árið 2024 undir handleiðslu Frans Fiselier, eftir að hafa lokið bakkalárgráðu frá Listaháskóla Íslands árið 2020. Þar naut hún m.a. leiðsagnar Hönnu Dóru Sturludóttur, Kristins Sigmundssonar, Ólafar Kolbrúnar Harðardóttur og Þóru Einarsdóttur.
Vera hefur hlotið fjölmargar viðurkenningar, meðal annars styrk úr Styrktarsjóði Halldórs Hansen við útskrift frá LHÍ og námsstyrk Landsbankans árið 2023. Hún vann til þriðju verðlauna í Vox Domini söngkeppninni í opnum flokki árið 2026 og hlaut sérstök verðlaun árið 2024 fyrir besta flutning á verki eftir Hildigunni Rúnarsdóttur.
Meðal verkefna síðustu ára má nefna þátttöku í óperunni Sæmundur Fróði eftir Þórunni Guðmundsdóttur í Tjarnarbíó, hlutverk Barbarinu í Brúðkaupi Fígarós í uppfærslu Kammeróperunnar í Borgarleikhúsinu, þátttaka í óperunni Hliðarspor eftir Þórunni Guðmundsdóttur í Gamla Bíói sem og í í óperunni Brím eftir Friðrik Margrétar-Guðmundsson og Adolf Inga Smárason. Vera fór með aðalhlutverk í nýju íslensku óperunni SKJÓTA eftir Sigrúnu Gyðu Sveinsdóttur. Þar að auki má nefna einsöngstónleika í Hörpu á tónleikaröðinni Velkomin heim sem og sólistahlutverk í hinum ýmsu konsert verkum eins og Petite Messe Solennelle eftir Rossini, Oratorio de Noël eftir Saint-Saëns og Stabat Mater eftir Pergolesi.
Vera kemur fram ásamt
Matthildi Önnu Gísladóttur
Hildigunni Einarsdóttur
vera á netinu
Vefsíða
vera KEMUR FRAM Á
*Mæðramáttur