Hönnunarstofa
Markús Bjarnason er hönnuður og listamaður með menntun frá Listaháskóla Íslands. Í verkum sínum sameinar hann hljóð, hönnun og myndlist þar sem áhersla er lögð á skynjun og upplifun rýmis.
Markús og Heiðbjört Arney Höskuldsdóttir stofnuðu saman Stúdíó Suð, listadrifna hönnunarstofu sem vinnur á mörkum hönnunar og listar með sérstaka áherslu á myndrænt- og hljóðrænt suð.
Suð-hljóðfærin sem þau hafa þróað eru óvenjuleg og eru í raun hljóðskúlptúrar sem gestir geta snert, fiktað í og spilað á. Hljóðin ferðast í gegnum Suð-hátalara sem magna þau upp, bjaga og umbreyta þeim á óútreiknanlegan hátt.
Stúdíó suð KEMUR FRAM Á
Suð
stúdíó suð á netinu
Vefsíða