Kristín Einarsdóttir Mäntylä
sópran
Kristín ólst upp í kórastarfi Langholtskirkju og söng þar með öllum kórum kirkjunnar. Með Graduale Nobili kórnum söng hún á Biophilia plötu Bjarkar Guðmundsdóttur og fylgdi því tveggja ára tónleikaferðalag. Hún útskrifaðist með Burtfararpróf úr Söngskóla Reykjavíkur hjá Hörpu Harðardóttur og hóf í kjölfarið söngnám við Tónlistarháskólann í Leipzig. Kristín lauk Meisterklassegráðu með hæstu einkunn árið 2024 og starfaði auk þess sem aðstoðarkennari Prof. Brigitte Wohlfarth frá 2022-2024 við Tónlistarháskólann í Leipzig.
Kristín hefur sungið við fjölda óperuhúsa í Þýskalandi svo sem í Leipzig, Gera, Altenburg, Brandenburg, Nordhausen, auk þess að syngja í uppsetningum „Szene 12“ í Dresden og Schlossfestspiele Ettlingen. Hennar stærsta hlutverk var hið veigamikla hlutverk Marie í óperunni Wozzeck eftir Alban Berg, sem Kristín flutti við mikið lof gagnrýnenda við óperuhúsin í Würzburg og Dessau árið 2025. Þessar mundir syngur Kristín aðalhlutverkið í óperunni “Svadba” við óperuhúsið í Bonn.
Hún hefur verið einsöngvari í Berliner Konzerthaus, óperunni í Leipzig, Bach Fest Leipzig, Rheinsberg Schlosstheater, íslensku óperunni og Hörpu tónlistarhúsi.
Kristín hlaut árið 2016 verðlaunin „Junge Stimmen Leipzig“ og hlaut styrk Richard Wagner félagsins í Leipzig og “Yehudi Menuhin” Live Music Now – Leipzig.
kristín kemur fram á
Mannsröddin