Erna Vala Arnardóttir


Píanóleikari



Erna Vala píanóleikari hefur komið fram sem einleikari með ýmsum hljómsveitum og spilað einleiks- og kammertónleika við fjölmargar tónleikaraðir og tónlistarhátíðir, og tónleikum hennar hefur verið sjónvarpað og útvarpað á Rúv og Rás 1, á Spáni og í Portúgal. Hún hefur spilað víða í Evrópu og Bandaríkjunum auk þess að vinna til verðlauna fyrir píanóleik. Þar má nefna heiðursorðuna Hvítu rósina frá forseta Finnlands, Sauli Niinistö, fyrstu verðlaun í efsta flokki EPTA- píanókeppninnar á Íslandi, Unga einleikara ásamt fleiru.

Erna Vala er stofnandi og listrænn stjórnandi tónlistarhátíðarinnar Seiglu sem haldin er árlega í byrjun ágúst í Hörpu. Hún hefur hlotið ýmsa styrki og viðurkenningar, þar á meðal úr Minningarsjóði Birgis Einarssonar, Tónlistarstyrk Rótarý og Fulbright.

Erna Vala lauk bakkalárgráðu og diplómu í píanóleik við Listaháskóla Íslands hjá Peter Máté árin 2016 og 2017. Erna Vala útskrifaðist með meistaragráðu í píanóleik frá Sibelíusarakademíunni árið 2019 undir handleiðslu Hömsu Juris. Auk þess hlaut hún meistaragráðu í hljóðfærakennslu frá Listaháskóla Íslands árið 2023. 

Hún hefur nú aðsetur í London og vinnur að doktorsgráðu í Performance Research við Royal Academy of Music. Rannsóknin hennar fjallar um það hvernig mynda má nánara samband tónlistarflytjenda og áhorfenda út frá sjónarhorni sínu sem tónlistarflytjandi og endurgjöf áhorfenda. Tónlistarhátíðin Seigla er vettvangur rannsóknarinnar. Hún er aðjúnkt og fagstjóri hljóðfærabrautar við Listaháskóla Íslands.





Erna Vala KEMUR FRAM Á

Tónapúsl 



Ásamt


Ewu Murawska
Wiesław Suruło
Áshildi Haraldsdóttur